Luke 3

1Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu, en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus bróðir hans í Ítúreu og Trakónítishéraði og Lýsanías í Abílene, 2í æðstapreststíð Annasar og Kaífasar, kom orð Guðs til Jóhannesar Sakaríasonar í óbyggðinni. 3Og hann fór um alla Jórdanbyggð og prédikaði iðrunarskírn til fyrirgefningar synda, 4eins og ritað er í bók Jesaja spámanns: Rödd hrópanda í eyðimörk: Greiðið veg Drottins, gjörið beinar brautir hans. 5Öll gil skulu fyllast, öll fell og hálsar lægjast. Krókar skulu verða beinir og óvegir sléttar götur. 6Og allir menn munu sjá hjálpræði Guðs. 7Við mannfjöldann, sem fór út til að skírast af honum, sagði hann: ,,Þér nöðru kyn, hver kenndi yður að flýja komandi reiði? 8Berið þá ávexti samboðna iðruninni, og farið ekki að segja með sjálfum yður: ,Vér eigum Abraham að föður.` Ég segi yður, að Guð getur vakið Abraham börn af steinum þessum. 9Öxin er þegar lögð að rótum trjánna og hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað.`` 10Mannfjöldinn spurði hann: ,,Hvað eigum vér þá að gjöra?`` 11En hann svaraði þeim: ,,Sá sem á tvo kyrtla, gefi þeim, er engan á, og eins gjöri sá er matföng hefur.`` 12Þá komu og tollheimtumenn til að skírast. Þeir sögðu við hann: ,,Meistari, hvað eigum vér að gjöra?`` 13En hann sagði við þá: ,,Heimtið ekki meira en fyrir yður er lagt.`` 14Hermenn spurðu hann einnig: ,,En hvað eigum vér að gjöra?`` Hann sagði við þá: ,,Hafið ekki fé af neinum, hvorki með ofríki né svikum. Látið yður nægja mála yðar.`` 15Nú var eftirvænting vakin hjá lýðnum, og allir voru að hugsa með sjálfum sér, hvort Jóhannes kynni að vera Kristur. 16En Jóhannes svaraði öllum og sagði: ,,Ég skíri yður með vatni, en sá kemur, sem mér er máttugri, og er ég ekki verður að leysa skóþveng hans. Hann mun skíra yður með heilögum anda og eldi. 17Hann er með varpskófluna í hendi sér til þess að gjörhreinsa láfa sinn og safna hveitinu í hlöðu sína, en hismið mun hann brenna í óslökkvanda eldi.`` 18Með mörgu öðru áminnti hann og flutti lýðnum fagnaðarboðin. 19Hann vítti Heródes fjórðungsstjóra vegna Heródíasar, konu bróður hans, og fyrir allt hið illa, sem hann hafði gjört. 20Þá bætti Heródes einnig því ofan á allt annað, að hann varpaði Jóhannesi í fangelsi. 21Er allur lýðurinn lét skírast, var Jesús einnig skírður. Þá bar svo við, er hann gjörði bæn sína, að himinninn opnaðist, 22og heilagur andi steig niður yfir hann í líkamlegri mynd, eins og dúfa, og rödd kom af himni: ,,Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun.`` 23En Jesús var um þrítugt, er hann hóf starf sitt. Var hann, eftir því sem haldið var, sonur Jósefs, sonar Elí, 24sonar Mattats, sonar Leví, sonar Melkí, sonar Jannaí, sonar Jósefs, 25sonar Mattatíass, sonar Amoss, sonar Naúms, sonar Eslí, sonar Naggaí, 26sonar Maats, sonar Mattatíass, sonar Semeíns, sonar Jóseks, sonar Jóda, 27sonar Jóhanans, sonar Hresa, sonar Serúbabels, sonar Sealtíels, sonar Nerí, 28sonar Melkí, sonar Addí, sonar Kósams, sonar Elmadams, sonar Ers, 29sonar Jesú, sonar Elíesers, sonar Jóríms, sonar Mattats, sonar Leví, 30sonar Símeons, sonar Júda, sonar Jósefs, sonar Jónams, sonar Eljakíms, 31sonar Melea, sonar Menna, sonar Mattata, sonar Natans, sonar Davíðs, 32sonar Ísaí, sonar Óbeðs, sonar Bóasar, sonar Salmons, sonar Naksons, 33sonar Ammínadabs, sonar Admíns, sonar Arní, sonar Esroms, sonar Peres, sonar Júda, 34sonar Jakobs, sonar Ísaks, sonar Abrahams, sonar Tara, sonar Nakórs, 35sonar Serúgs, sonar Reú, sonar Pelegs, sonar Ebers, sonar Sela, 36sonar Kenans, sonar Arpaksads, sonar Sems, sonar Nóa, sonar Lameks, 37sonar Metúsala, sonar Enoks, sonar Jareds, sonar Mahalalels, sonar Kenans, 38sonar Enoss, sonar Sets, sonar Adams, sonar Guðs.
Copyright information for Icelandic